Skólafundir

Skv. 9. gr. laga um framhaldsskóla nr. 92/2008 skal haldinn skólafundur a.m.k. einu sinni á ári. Rétt til setu á skólafundi hafa allir starfsmenn skólans og nemendur. Á skólafundi er rætt um málefni skólans. Fundargerð er kynnt stjórn skólans.