Stjórnandi aðgerðar ef til rýmingar kemur er skólameistari, umsjónarmaður öryggis- og tæknimála eða sá kennari námskeiðaskóla sem kennir í stofu næst stjórntöflu. Haldin er brunaæfing með nemendum dagskóla í upphafi hverrar annar og með kennurum á kennarafundum í upphafi annar.
Kort með upplýsingum um næstu flóttaleið hangir á áberandi stað í hverju rými. Kennarar námskeiðaskóla benda nemendum á námskeiðum á þessar upplýsingar við upphaf námskeiðs.
Þar sjást:
- tvær bestu flóttaleiðirnar
 - söfnunarsvæði
 - upplýsingar um hvernig á að bregðast við eldi og jarðskjálftum
 - staðsetning brunavarnatækja
 
Rýming
1. Viðvörunarkerfi fer af stað
Kennarar:
- setja nemendur í viðbragðsstöðu,
 - skoða flóttaleiðakort,
 - bera nemendafjölda saman við viðverulista og kanna hvort allir séu á sínum stað,
 - gefa nemendum upplýsingar um stystu leiðir og söfnunarsvæði,
 - bíða átekta.
 
Aðrir starfsmenn skólans:
- fara yfir sitt svæði og athuga hverjir eru þar,
 - bíða átekta.
 
Stjórnandi aðgerðar:
- fer að stjórntöflu og aðgætir boðin,
 - slekkur á hljóðgjafa,
 - hefur samband við vaktstöð og veitir upplýsingar um boðin.
 
Ef viðvörunarkerfið hljóðnar halda allir áfram að vinna en eru áfram í viðbragðsstöðu
2. Viðvörunarkerfið fer aftur af stað
Allir:
- fara hratt en skipulega út og skilja allt laust dót eftir s.s. töskur, bækur og úlpur, nema hvað kennarar taka með sér kladda eða lista yfir viðstadda nemendur,
 - safnast saman á söfnunarsvæði (sbr. kort yfir flóttaleiðir) og bíða frekari fyrirmæla stjórnenda.
 
Kennarar og lykilstarfsmenn:
- kanna hver sinn hóp og upplýsa stjórnanda,
 - láta vita ef grunur er um að einhver sé inni á hættusvæði,
 - aðstoða nemendur á ýmsa lund.
 
3. Stjórnandi aðgerðar:
- hefur samband við neyðarlínuna 112 ef við á,
 - slekkur eld ef það er öruggt til að lágmarka tjón,
 - tekur á móti slökkviliði ef við á,
 - aðstoðar nemendur og starfsfólk, t.d. við að finna húsaskjól,
 - heimilar inngöngu þegar tryggt er að allt sé í lagi.