Á 2. hæð hússins eru skrifstofur, starfsmannaaðstaða og geymslur. Einnig 4 kennslustofur námskeiðaskóla, ljósmyndaverkstæði (myrkraherbergi), grafíkverkstæði, keramikverkstæði og ofnaaðstaða fyrir námskeiðaskólann og kaffiaðstaða námskeiðaskólans.
Á 3. hæð eru heimastofur fjögurra viðbótarnámsbrauta. Einnig þrykkverkstæði og vefstofa fyrir textílbraut, gifsverkstæði, glerungaverkstæði og ofnaaðstaða fyrir keramikbraut.
Á 4. hæð eru 6 kennslustofur listnámsbrautar og fornáms. Einnig hátíðasalur skólans þar sem bókasafn skólans er varðveitt og kaffistofa nemenda dagskólans.