Textíll

Textílbraut er tveggja ára nám þar sem þú kynnist öllum helstu aðferðum og tækni í textílvinnu og öðlast fræðilega fagþekkingu. Áhersla er lögð á tæknilega færni og sjálfstæði nemandans í hugmyndavinnu og útfærslu.

Textílbraut á Instagram.

Námslýsing

Nám á brautinni er að stærstum hluta verklegt en fræðilegt nám er u.þ.b. fjórðungur. Nemendur læra fjölbreyttar vinnuaðferðir í textíl svo sem silkiþrykk, hand- og vélprjón, vefnað, spuna, jurtalitun, munsturgerð og útsaum.

Til fræðilegra áfanga teljast fagsaga, hönnunarsaga, listasaga og heimspeki auk viðskiptaáfanga og málstofu. Málstofa er vettvangur fyrir margvíslega umræðu þar sem textílheimurinn er skoðaður í stærra sögulegu samhengi og víðara ljósi. Farið er á söfn og sýningar, í heimsóknir á vinnustofur eða fyrirtæki og fyrirlesarar úr atvinnulífinu fengnir í heimsókn.

Einn af áföngum textílbrautar er námsferð til Evrópu þar sem nemendur kynnast ýmsum náms- og starfsmöguleikum. Ferðirnar eru styrktar af Erasmus+ menntaáætlun Evrópusambandsins.

Verklegir áfangar eru flestir kenndir í samfelldum lotum. Lifandi samræða um verkefni nemenda er ríkur þáttur í öllum verklegum áföngum. Áhersla er lögð á samvinnu og skólinn útvegar nemendum gjarnan raunveruleg verkefni sem byggja á samstarfi við einstaklinga utan skólans, fyrirtæki og stofnanir.

Nám á textílbraut er 120 einingar. Unnið er með ákveðna grunnþætti á hverri önn um sig; sögulegt samhengi, mynstur og áferð, framleiðslu og umhverfisvitund og persónulega stefnu. Viðfangsefnið er skoðað frá ýmsum sjónarhornum og tilraunir gerðar með nýjar leiðir. Fræðimenn og fagfólk er fengið til að varpa ólíku ljósi á námsefnið.

Nánari upplýsingar um nám á textílbraut.

Einungis einn hópur við nám á hverjum tíma. Námið skiptist í fjórar annir sem fjalla hver og ein um afmarkað efni eða aðferð. Það skiptir því ekki máli á hvaða önn nemandi hefur sitt nám. Auglýst er eftir umsóknum þegar hægt er að bæta við nemendum.

Námsgjöld skólaárið 2024-25 er 580.000 kr. eða 290.000 kr. önnin. Námið er lánshæft hjá Menntasjóði.

Mat á umsókn

Inntökuskilyrði er stúdentspróf af listnámsbraut eða sambærilegt nám. Auk þess skila umsækjendur inn stafrænum myndum úr skissubókum og möppu með sýnishornum af eigin verkum og eru í framhaldinu boðin í viðtal við inntökunefnd.

HEFUR ÞÚ SPURNINGAR EÐA VANTAR ÞIG FREKARI UPPLÝSINGAR?

Hafa samband við yfirkennara textílbrautar.