Viðbótarnám við framhaldsskóla
Nám er ætlað fólki sem lokið hefur stúdentsprófi af listnámsbraut eða sambærilegu námi. Nám á 4. þrepi beinist að aukinni faglegri sérhæfingu nemandans, stjórnun og þróun á starfsvettvangi. Slíkt nám er skilgreint sem viðbótarnám við framhaldsskóla.
Námið hentar einnig nemendum sem lokið hafa háskólanámi í myndlist eða hönnun sem vilja dýpka þekkingu sína á efni og aðferðum á einu af þessum sviðum. Námið er lánshæft hjá Menntasjóði.
Á hverri braut er einungis einn hópur við nám á hverjum tíma. Námið skiptist í fjórar annir sem fjalla hver og ein um afmarkað efni eða aðferð. Það skiptir því ekki máli á hvaða önn nemandi hefur sitt nám. Auglýst er eftir umsóknum þegar hægt er að bæta við nemendum.
Áhugasömum er bent á að hafa samband við yfirkennara viðkomandi námsbrautar sem veitir frekari upplýsingar.