Fyrir hverja er námið?
- Námið er fyrir allt fólk sem hefur klárað starfsbraut í framhaldsskóla.
- Fólk má líka hafa klárað nám sem er líkt og starfsbraut.
Hvernig sæki ég um námið?
- Þú fyllir út umsókn.
- Þú sendir líka skissubækur og sýnis-horn af listaverkum eftir þig.
- Þú hittir okkur í skólanum og við tölum saman. Það heitir að koma í inntökuviðtal.
Hvað lærum við í náminu?
- Í náminu lærum við um myndlist og hönnun.
- Við lærum allskonar leiðir sem fólk notar til að búa til myndlist. Til dæmis lærum við vinnu-aðferðir og tækni sem fólk notar.
- Við lærum orð og lýsingar sem við notum til að tala um myndlist og hönnun. Við lærum líka að nota orð og hugmyndir til að búa til myndlist og hönnun.
- Við lærum lista-sögu og tölum um listaverk sem fólk hefur búið til. Við lærum um samtíma-list og tölum um hvernig list myndlistarfólk er að gera í dag.
Hvenær er kennsla?
- Kennsla er frá morgni fram að hádegi. Námið er alla virka daga og ekki um helgar.
- Námið er hálft nám.
- Námið er tvær annir. Ein haustönn og ein vorönn. Hver önn er 15 einingar. Samtals er námið 30 einingar.
Hvað kann ég eftir að hafa klárað námið?
- Þú hefur lært hvað það eru margar leiðir og aðferðir til að búa til myndlist.
- Þú hefur lært að nota margar þessar aðferðir til að búa til eigin listaverk.
- Þú hefur lært að nota allskonar verkfæri og tæki til þess að búa til myndlist.
- Þú hefur lært að vinna í þinni eigin list. Þú hefur lært að gera það sjálfstætt eða með stuðningi frá öðrum.
- Þú getur sagt frá þínum listaverkum og þú getur talað um listaverk eftir annað listafólk. Við getum öll lært að segja frá list eins og okkur líður best að gera það.
- Þú getur sagt frá áhugamálunum þínum. Þú kannt leiðir til að halda áfram að búa til list og skapa listaverk. Þannig ert þú skapandi manneskja í samfélaginu.
Hvað gerist eftir að ég klára námið?
Námið gefur nemanda engin réttindi eða gráðu.
HEFUR ÞÚ SPURNINGAR EÐA VANTAR ÞIG FREKARI UPPLÝSINGAR?
Nánari upplýsingar um nám í myndlist má finna í námslýsingu.
Námsgjöld skólaárið 2023-24 er 192.000 kr. eða 96.000 kr. önnin.
Ef þú vilt spyrja um námið eða fá aðstoð getur þú hringt í skrifstofu skólans í síma 5511990 eða sent okkur tölvupóst á berglinderna@mir.is.
Berglind Erna Tryggvadóttir er yfirkennari námsins.