Ég hef brennandi áhuga á sögugerð og myndrænni frásögn og langaði því að vinna verkefnið mitt út frá einni af uppáhalds bókum barnæsku minnar; Ljónið, nornin og skápurinn eftir C.S.Lewis úr bókaflokknum Töfralandið Narnía.
Lokaverkefnið mitt snýr að því að skapa hugmyndavinnu og myndskreytingar út frá bókinni og hanna útlitið fyrir hvernig hún gæti litið út sem teiknimynd. Í gegnum það ferli fór ég á kaf í rannsóknarvinnu og hef unnið að öllu frá karakterhönnun, leikmuna- og umhverfishönnun yfir í stafræn málverk af lykilatriðum bókarinnar.