MDF plata, málning, svampur, áklæði
~70cm x 100cm
Stóll nr. 1 er eins og nafnið bendir til fyrsti stóllinn sem ég hef hannað en svo
sannarlega ekki sá síðasti. Ég dró innblástur úr mínu daglega umhverfi og verkum annarra
hönnuða t.d. Arne Jacobsen og Isamu Noguchi. Stóllinn samanstendur af timbur grind sem
hægt er að setja 24 púða í, en púðarnir geta verið hvernig sem notandinn vill og því lítið mál að
breyta stólnum eftir þörfum og smekk.