Skráning á haustnámskeið fyrir börn á aldrinum 4 til 12 ára og unglinga á aldrinum 13 til 16 ára er í gegnum ABLER appið.
Skráning hefst 1. júlí. Notið tengilinn hér að neðan til að skoða námskeiðslýsinguna.
Skráning á haustnámskeið fyrir börn á aldrinum 4 til 12 ára og unglinga á aldrinum 13 til 16 ára er í gegnum ABLER appið.
Skráning hefst 1. júlí. Notið tengilinn hér að neðan til að skoða námskeiðslýsinguna.
| Námskeiðsgjald: | Skráð námskeiðsgjöld miðast við umsækjendur með lögheimili í Reykjavík, í samræmi við fjárveitingu Reykjavíkurborgar til Barna- og unglingadeildar. Fjárhagslegur stuðningur Reykjavíkurborgar nær eingöngu til þeirra sem hafa lögheimili í Reykjavík. Athugið að umsækjendur með lögheimili utan Reykjavíkur greiða 30% hærra námskeiðsgjald fyrir börn og ungmenni. Álagningin er innheimt samhliða námskeiðsgjaldi við innritun. |
| Klæðnaður: | Æskilegt er að börnin séu í þægilegum fötum sem mega óhreinkast, fremur en sparifötum. |
| Kaffitími: | Ætlast er til að börnin hafi með sér einhvern léttan bita / hollt nesti, en fari ekki að kaupa í kaffitímanum. Athygli er vakin á því að Myndlistaskólinn er hnetufrír og því má ekki taka með sér nesti sem inniheldur hnetur. |
| Foreldrar og forráðamenn barna á aldrinum 4 og 5 ára athugið: | Það er afar mikilvægt að fjölskyldumeðlimir skilji ekki börn sín eftir ein í skólanum áður en kennsla hefst og sæki börnin um leið og kennslu lýkur. Ef börnin eru ekki fær um að fara ein á salernið þurfa aðstandendur að vera á staðnum til að aðstoða þau. |
| Vetrarfrí skólans: | Vetrarfrí er frá og með 22. til og með 26. október (fimmtudegi til mánudags). Engin kennsla verður þessa daga. |
| Persónuverndarstefna: | Skólinn áskilur sér rétt til að nota myndir og myndbönd úr starfi sínu í auglýsinga- og kynningarskyni, á heimasíðu, í prentuðu markaðsefni og á samfélagsmiðlum. Berist beiðni frá nemanda eða forráðamanni um að fjarlægja efni þar sem viðkomandi kemur fram verður hún ávallt virt. Sérstök áhersla er lögð á að andlit nemenda í barnadeild séu ekki greinanleg í auglýsingaefni nema með skýru leyfi forráðamanna. |
| Spurningar? | Sendið tölvupóst á mir@mir.is með fyrirspurnum í júlí þegar skrifstofan er lokuð. Svör við tölvupóstum verða ekki tímanleg. Þökkum fyrir þolinmæðina. |