Það var auðvelt að ákveða að gera eitthvað fallegt. Aftur á móti var frekar erfitt að gera eitthvað nógu fallegt. Var það jafn erfitt hlutskipti og að vera með heiminn á herðum sér? Ég held ekki, það væri örugglega gífurlega erfitt. Það að gera eitthvað fallegt er frekar bara svona nokkuð erfitt. Eins og að ganga um með þungan bláan æfingabolta á herðunum í smá stund. Það er alltaf hægt að sleppa boltanum og ákveða bara að eitthvað sé fallegt
Máni Snær Þorláksson
Með eitthvað fallegt á herðunum.