Vorsýning Myndlistaskólans í Reykjavík, 7.-11. maí í skólanum, Rauðarárstíg 10 við Hlemmtorg.
Nemendur á listnámsbraut, keramikbraut, listmálarabraut, teiknibraut og textílbraut sýna margvísleg verk sem gefa góða mynd af blómstrandi sköpunarkrafti innan skólans.
Komdu og upplifðu fjölbreytni og ferskar hugmyndir á árlegri vorsýningu nemenda við Myndlistaskólans í Reykjavík.
Opnun: Fimmtudagur 7. maí kl. 16:00–19:00
Á sama tíma opnar keramikbraut skólans sýningu Mótaðar tengingar sem er hluti af dagskrá Hönnunarmars í ár. Sú sýning er í gluggum Gallerí Folds, Rauðarástíg 12, og hún er opin frá kl. 12 alla daga.
Opnunartímar vorsýningarinnar:
• Föstudagur 8. maí kl. 13:00–18:00
• Laugardagur 9. maí kl. 13:00–18:00
• Sunnudagur 10. maí kl. 13:00–18:00
• Mánudagur 11. maí kl. 13:00–18:00
Verið velkomin að fagna vorinu með okkur og sjá hvað er að gerast í íslenskri myndlistarsköpun framtíðarinnar.