27.04.26
Keramiksýning Mótaðar tengingar / HönnunarMars 2026

Tíu nemendur keramikdeildar Myndlistaskólans í Reykjavík sýna verk sín í Gallerí Fold. Verkin spretta úr þema Hönnunarmars, Tengingar, og eru mótuð af spurningum um tengsl – þau sem sjást, þau sem finnast og þau sem lifa í minningum.

Með leirinn sem sameiginlegt tungumál leita þær að tengingum í hinu daglega og hinu djúpa: í matnum sem færir okkur saman, í handverkinu sem heldur utan um sorg, í efniviðnum sem ber í sér minni og mótstöðu. Hér verða samskeyti og samsetningar bæði líkamleg og huglæg.

Nemendurnir setja sig í spor náttúrunnar, leirsins sjálfs, dýranna sinna, forfeðra og eigin sjálfs. Þær teygja sig í allar áttir – aftur í tímann, inn á við og út í heiminn – í leit að tengingum sem móta okkur. Verkin voru unnin í áfanga í gifsmótun undir leiðsögn Jens Pfotenhauer.

Sýningin Mótaðar tengingar opnar fimmtudaginn 7. maí, milli kl. 15 og 17 (samhliða opnun vorsýningar skólans, frá kl. 16 til 19 á Rauðarstíg 10).

Mótaðar tengingar

Gallerí Fold er opið frá kl. 12:00 til 18:00 á föstudögum og mánudögum og frá kl. 12:00 til 16:00 á laugardögum. Einnig á sunnudögum um sýningarhelgar frá kl. 12:00 til 16:00.

Upplýsingar um verk á sýningunni

***

Ten students from the ceramics department of the Reykjavík School of Visual Arts present their work at Gallerí Fold.
The works emerge from the DesignMarch theme Connections and are shaped by questions of relationships—those that are visible, those that are felt, and those that live on in memory.

With clay as a shared language, they search for connections in both the everyday and the profound: in food that brings us together, in craftsmanship that holds space for grief, and in materials that carry memory and resistance. Here, joints and assemblages become both physical and conceptual.

The students place themselves in the shoes of nature, the clay itself, their animals, their ancestors, and their own selves. They stretch in all directions—back in time, inward, and out into the world—in search of the connections that shape us. The works were created during a plaster mould-making course under the guidance of Jens Pfotenhauer.

The exhibition Casted Connections opens on Thursday, May 7, from 3–5 pm (concurrent with the opening of the school’s spring exhibition, from 4–7 pm at Rauðarárstígur 10).

Casted Connections

Gallerí Fold is open 12:00–18:00 on Fridays and Mondays, 12:00–16:00 on Saturdays, and 12:00–16:00 on Sundays during exhibition weekends.

Information about the exhibits

Silja photo 1
Marie2
Doro Sora 3
Honnunarmars