Verk nemenda á námskeiðum verða í öndvegi að þessu sinni.
Á opna húsinu gefst líka tækifæri til að kynnast námsbrautum skólans á framhaldsskólastigi en móttaka umsókna um nám á næsta skólaári er nýlega hafin. Allar kennslustofur verða opnar og fulltrúar nemenda verða á staðnum og munu svara fyrirspurnum um nám á listnámsbraut, í keramiki, málaralist, teikningu og textíl.
Nemendur á fyrra ári listnámsbrautar selja kaffi og með því og ágóðinn rennur í ferðasjóð en þau fara í námsferð til Evrópu næsta haust.
Hjartanlega velkomin!