10.11.26
Vornámskeiðin eru að birtast á vefnum

Vornámskeiðin 2027!

Fyrstu vornámskeiðin fyrir 16 ára og eldri eru nú komin inn á námskeiðalistann. Þar má þegar finna fjölbreytt úrval námskeiða fyrir bæði byrjendur og lengra komna.

Námskeið fyrir börn og unglinga verða birt á næstu vikum, svo það er um að gera að fylgjast vel með.

Ertu að leita að skapandi jólagjöf? Námskeið í Myndlistaskólanum eru frábær gjöf fyrir þann sem vill læra eitthvað nýtt, rækta sköpunargleðina eða gefa sér tíma fyrir listina á nýju ári.

Skoðaðu námskeiðin og tryggðu þér pláss sem fyrst. Skráning er hafin á þeim námskeiðum sem þegar hafa verið birt og takmarkaður fjöldi sæta er í boði.

Við hlökkum til að taka á móti ykkur á vorönninni.

Img 8198