05.02.26
Myndbönd og teiknimyndir – sýning fornámsnemenda á Vetrarhátíð

Nemendur í fornámi fyrir þau sem lokið hafa starfsbraut kynna fjölbreytt myndbönd og teiknimyndir sem unnin eru undir handleiðslu Hafsteins Loga Hilmarssonar.

Verkefnin sameina ævintýraheim og gleði við skapandi tækni og faglega úrvinnslu – litrík blanda ímyndunarafls og nýsköpunar.

Sem hluti af Vetrarhátíð verða verkin varpuð á Ráðhús Reykjavíkur við Vonarstræti dagana 5.–8. febrúar, kl. 18:30-22:30. Sjá dagskrá.

Mynd: Kyrrmynd úr teiknimyndaverkefni eftir nemendurna Breka Björnsson og Katrínu Guðrúnu Tryggvadóttur.

Vetrahatid 2026