Dagana 19.–21. október fylltist skólinn af sköpunargleði, tilraunum og nýjum áskorunum þegar haldnir voru Verkstæðisdagar. Á þessum þremur dögum fengu nemendur einstakt tækifæri til að stíga út fyrir hefðbundin mörk síns náms og velja sér þrjú ólík verkstæði til að taka þátt í.
Markmið Verkstæðisdaganna er að víkka sjóndeildarhring nemenda og efla listræna þróun þeirra með því að kynna fyrir þeim fjölbreyttar aðferðir, efni og tækni sem þeir myndu ekki endilega kynnast í daglegu námi. Með því að prófa nýjar leiðir í listsköpun bæta nemendur í eigin verkfærakistu og öðlast ný sjónarhorn sem geta haft áhrif á framtíðarverk þeirra.
Hér má sjá myndir frá síðasta degi Verkstæðisdaganna, þegar líf og fjör ríkti á verkstæðum skólans.
Við þökkum kennurum og nemendum fyrir þrjá innblásna daga þar sem forvitni, sköpunarkraftur og tilraunagleði voru í forgrunni.