Myndlistaskólinn í Reykjavík tekur þátt í Barnamenningarhátíð í ár með glæsilegri sýningu á verkum nemenda í barnadeild skólans.
Sýningin fer fram á Kjarvalsstöðum, þar sem gestum gefst færi á að sjá afrakstur listnámskeiða vorannar 2026.
Um 140 börn taka þátt í sýningunni og sýna bæði tvívíð og þrívíð verk, unnin úr pappír og leir. Verkin eru innblásin af þema Barnamenningarhátíðar í ár – samfélagi og samkennd – og endurspegla sköpunargleði, samvinnu og hugmyndaauðgi ungu listamannanna.
Sýningin opnar þriðjudaginn 21. apríl kl. 16. Verið hjartanlega velkomin að vera viðstödd opnunina.
Sýningin er sett saman af kennurum námskeiðsins ásamt deildarstjóra barnadeildarinnar, Þuríði Ósk Smáradóttur.
Sýningunni lýkur sunnudaginn 26. apríl. Það er tilvalið að heimsækja Listasafn Reykjavíkur – Kjarvalsstaði við Flókagötu og njóta listaverkanna.