27.05.26
Útskriftarhátíð Myndlistaskólans 22. maí

Útskriftarhátíð skólans fór fram föstudaginn 22. maí en þá luku 82 nemendur námi við skólann af sjö mismunandi námsleiðum.

9 nemendur luku stúdentsprófi af listnámsbraut en 41 nemandi, lauk fornámi, eins árs námsleið sem samanstendur af völdum verklegum áföngum af listnámsbrautinni. Fornámshópurinn var tvískiptur: 36 nemendur með stúdentspróf frá öðrum skóla og fimm nemendur með próf af starfsbraut framhaldsskóla. Í fyrsta sinn fóru þessir tveir hópar samferða í gegnum námið en þeir voru samtímis í sömu námsgrein þótt uppbygging áfanga sé frábrugðin. Fyrirkomulagið skapar aukin tækifæri til samskipta og samstarfs og er ætlunin að halda áfram á þeirri braut og efla enn frekar samþættingu og inngildingu í námi.

32 nemendur luku tveggja ára viðbótarnámi við framhaldsskóla, 6 af keramikbraut, 8 af listmálarabraut, 14 af teiknibraut og 3 af textílbraut.

Ennfremur lauk einn gestanemandi teiknibraut sem hafði áður lokið fornámi fyrir starfsbrautarnemendur. Þrír nemendur sem hafa lokið öllum áföngum við skólann en eiga eftir að taka áfanga eða tvo við annan skóla til að ná stúdentsprófi fögnuðu með félögum sínum.

Lára Stefanía Guðnadóttir sem var að útskrifast úr fornámi fyrir stúdenta, ávarpaði samkomuna fyrir hönd nemenda. Skólahljómsveit Myndlistaskólans flutti lagið Listamaður og hljómsveitin Screams of Agony flutti þrjú frumsamin lög .

Að venju gaf skólinn öllum útskriftarnemendum pensil með merki skólans.

Starfsfólk og kennarar skólans óska þessu glæsilega fólki innilega til hamingju með áfangann og velfarnaðar í framtíðinni.

HOPMYND 72dpi