Við erum afar stolt af því að Halldór Baldursson, yfirkennari teiknibrautar, hafi verið tilnefndur til Íslensku menntaverðlaunanna 2026 í flokknum Framúrskarandi kennsla.
Tilnefningarnar voru kynntar á vef Stjórnarráðsins í dag, á alþjóðadegi kennara. Markmið verðlaunanna er að vekja athygli á framúrskarandi starfi á sviði menntunar og auka sýnileika metnaðarfullra þróunarverkefna.
Við óskum Halldóri innilega til hamingju með þessa verðskulduðu tilnefningu og fögnum þessari glæsilegu viðurkenningu á mikilvægu starfi hans.