Sumarnámskeið fyrir bjartari daga 🌞
Í sumar bjóðum við upp á hvetjandi námskeið í júní og ágúst fyrir börn á aldrinum 6 til 16 ára.
Barna- og unglinganámskeiðin eru vikulöng og fara fram á eftirfarandi dögum:
- 15.06. til 19.06. mán., þrið.,fim. og fös. Verður ekki kennt miðvikudaginn 17.06.
- 22.06. til 26.06. mán.-fös.
- 10.08. til 14.08. mán.-fös.
Barnanámskeiðin eru haldin annað hvort fyrirmiðdaga eða síðdegis.
Reynslumiklir kennarar okkar koma spennandi og skapandi hugmyndum til lífs og leiðbeina nemendum við að skapa bæði tví- og þrívíddarverkefni með fjölbreyttum efnivið.
Dagskráin inniheldur einnig skemmtilegar vettvangsferðir og útivist, sem örvar ímyndunaraflið og gleðina.
Fyrir þá sem eru 16 ára og eldri bjóðum við upp á færniuppbyggjandi námskeið í textíl og keramik – fullkomið fyrir alla sem vilja læra nýjar aðferðir eða dýpka hæfileika sína.