Sunnudaginn 15. mars verður opið hús í Myndlistaskólanum í Reykjavík, en skólinn er nýlega fluttur að Rauðarárstíg 10, við Hlemmtorg. Húsið sem hefur verið tekið rækilega í gegn verður opið milli kl. 13:00 og 17:00 en verk nemenda á námskeiðum verða í öndvegi að þessu sinni.
Á opna húsinu gefst líka tækifæri til að kynnast námsbrautum skólans á framhaldsskólastigi en móttaka umsókna um nám á næsta skólaári er nýlega hafin. Allar kennslustofur verða opnar og fulltrúar nemenda verða á staðnum og munu svara fyrirspurnum um nám á listnámsbraut, í keramiki, málaralist, teikningu og textíl.
Nemendur á fyrra ári listnámsbrautar selja kaffi og með því og ágóðinn rennur í ferðasjóð en þau fara í námsferð til Evrópu næsta haust.
Hjartanlega velkomin!