02.05.24
Vorsýning 2024

Vorsýning skólans verður opnuð fimmtudaginn 9. maí kl. 14:00 í húsnæði skólans í JL-húsinu, Hringbraut 121.

125 nemendur í dagskóla eiga verk á sýningunni.

Útskriftarnemendur af keramikbraut, listmálarabraut, teiknibraut og textílbraut sýna sjálfstæð lokaverkefni eftir tveggja ára nám við skólann. Nám í keramiki, málaralist, teikningu og textíl miðar að því að dýpka fagþekkingu og auka víðsýni nemenda og búa þau undir frekara listnám eða vinnu sem sjálfstæðir listamenn og hönnuðir.

Á listnámsbraut eru nemendur að búa sig undir háskólanám í myndlist og hönnun. Nemendur á fyrra ári í námi til stúdentsprófs sýna verkefni unnin í stærðfræði áfanga en stúdentsefni brautarinnar sýna sjálfstæð lokaverkefni eftir tveggja ára nám. Nemendur sem þegar hafa lokið starfsbraut eða stúdentsprófi af annarri braut framhaldsskóla sýna sjálfstæð lokaverkefni eftir eins árs nám við skólann.

Vorsýningin er tilvalið tækifæri fyrir listunnendur og þá sem hafa áhuga á að kynnast námsframboði dagskólans. Verið öll velkomin!

Opnunartímar sýningar:

  • Fimmtudagur 9. maí kl. 14-17 (Opnun)
  • Föstudagur 10. maí kl. 13-18
  • Laugardagur 11. maí kl. 13-18
  • Sunnudagur 12. maí kl. 13-18
  • Mánudagur 13. maí kl. 13-18


Vorsyning 24