Hefurðu áhuga á myndlist, hönnun og listhandverki? Við getum bætt við nemendum á textíl og keramikbrautum á vorönn 2025.
Um er að ræða tveggja ára nám með áherslu á á aðferðir, tækni og tilraunir. Námið hentar einnig nemendum sem hafa þegar lokið háskólanámi í myndlist eða hönnun og vilja dýpka fagþekkingu sína á efni og aðferðum á einu af þessum sviðum.
Námið er lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna.
Umsóknarfrestur er til miðnættis sunnudaginn 15. desember.
Vorönn hefst fimmtudaginn 6. janúar 2025.