Örnámskeið í leirmótun: Pulsuaðferð

Námskeiðið Örnámskeið í leirmótun: Pulsuaðferð er það fyrsta í röð inngangsnámskeiða í leirmótun, þar sem tiltekin aðferð við mótun og hleðslu leirs er tekin fyrir. Nemendur munu móta hlut með svokallaðri pulsuaðferð undir handleiðslu kennara. Þeim gefst líka færi á því að lita hlutinn með leirlit en kennari mun glerja alla hlutina með glærum glerungi eftir að námskeiði lýkur. Eftir námskeiðið eiga þátttakendur að hafa fengið tilfinningu fyrir möguleikum og takmörkunum aðferðarinnar og geta nýtt sér hana í sjálfstæðri vinnu.

Þar sem um inngangsnámskeið er að ræða, er námskeiðið sérstaklega sniðið að þörfum byrjenda. Lengra komnum er þrátt fyrir það velkomið að sækja námskeiðið enda kjörið tækifæri til að leira í félagsskap annarra.

Styttra námskeið, þrjú skipti alls:

  • 31.05. (fös.) kl. 13:00-16:00
  • 01.06. (lau.) kl. 13:00-16:00
  • 02.06. (sun.) kl. 13:00-16:00

Námslok miðast við 80% mætingu. ATH. Kennslan fer fram á íslensku og á ensku eftir þörfum.

Efniskaup: Allt leirefni er innifalið í námskeiðisgjöldum og verkfæri eru til láns á staðnum.
Hámarksfjöldi nemenda: 12
Mir 16 03 21 73 cropped

Hringbraut 121

Hópur Hefst Lýkur Tímasetning Kennari Verð Skráning
N0531 31. maí, 2024 – 2. júní, 2024 31. maí, 2024 2. júní, 2024 13:00-16:00 Anna Wallenius 37.500 kr.