Vinnustofan er ætluð nemendum sem geta eða vilja vinna sjálfstætt í listsköpun sinni en jafnframt eiga þess kost að leita leiðsagnar. Fyrir þá sem vilja eru verkefni, en þó það opin að hægt er að leysa þau á eigin hátt. Fjallað um tæknileg atriði s.s. liti og íblöndunarefni, grunna og fleira. Inn í kennsluna verða fléttuð dæmi og fróðleikur úr listasögunni eftir því sem við á.
Leiðbeinandi: Kristinn G. Harðarson.
Vinnustofan er 12 vikur.