Myndlist: Vinnustofa

Vinnustofan er hugsuð sérstaklega fyrir nemendur sem hafa útskrifast af starfsbrautum og fjölnámsbrautum framhaldsskólanna eða þau sem almennt þurfa góðan stuðning við þátttöku á námskeiðum.

Vinnustofan er annars vegar hugsuð sem sjálfstæð vinna undir handleiðslu kennara fyrir hóp sem á það sammerkt að hafa fengist töluvert við listiðkun og jafnvel mótað persónulegan stíl. Hins vegar er boðið upp á kennslu í tækni, efni og aðferðum fyrir nýja nemendur.

Vinnustofan er því sérsniðin að þörfum hvers og eins og um leið hvatning til þátttakenda að halda listiðkun sinni áfram og víkka bæði áhugasvið sitt og færni í myndlist.

Vinnustofan er 12 skipti. Kennt verður á fimmtudags-eftirmiðdögum kl. 12:15-15:00.

Efniskaup: Nemendur koma með þau efni og áhöld sem þeir eiga og eru vanir að nota. Frekari efniskaup í samráði við kennara.
Hámarksfjöldi nemenda: 14
Undanfari:

Hafa lokið starfsbraut eða fjölnámsbraut framhaldsskólanna.

Fridagar skólans:

Vegna páskafrís 22.-29. mars fellur kennsla niður fimmtudaginn 25. mars.

Namskeid barna22 02757

Rauðarárstígur 10

Hópur Hefst Lýkur Kennsludagur Tímasetning Kennari Verð Skráning
VS0114 14. janúar, 2027 – 8. apríl, 2027 Fimmtudagur 14. janúar, 2027 8. apríl, 2027 Fimmtudagur 12:15-15:00 Kristinn G. Harðarson og Kristín Karólína Helgadóttir 138.000 kr.