Á námskeiðinu læra nemendur grundvallaratriði myndvefnaðar í ramma. Nemendur vefa mynd eftir eigin teikningu sem og tvo smáa nytjahluti og kynnast tvöföldum vefnaði og tildreginni uppistöðu. Nemendur geta tekið verkefni með sér heim milli kennslustunda og eru hvött til að vinna að þeim milli tíma.
Námskeiðið er góð leið til að kynnast vefnaði í gegnum einfalda tæknikennslu og tilraunamennsku.
Námskeiðið er 8 vikur.