Á 6 vikum þá tökum við fyrir ýmiss hefðbundin verkefni þar sem nemendur læra þar á meðal að teikna Anime/manga: höfuð, líkama í stærðarhlutföllum, bakgrunn, Turnaround og Storyboarding.
Námskeiðið er miðað á að gefa nemendum innsýn í sköpun myndasagna, sem og eru tengingar við listferlin sem notuð eru til að skapa persónur fyrir til dæmis tölvuleiki og bíómyndir.
Tímum er skipt upp í hnitmiðuð verkefni annars vegar, og frjálslegri stúdíu hinsvegar, hvort sem þú ert að taka þitt allra fyrsta skref í teikningu eða villt viðhalda færninni þá ætti þetta námskeið að henta.