Á námskeiðinu læra nemendur fjórar ólíkar aðferðir til að gera við föt: að stoppa í, að sauma bót, prjónaspor, og Boro. Á námskeiðinu verður lögð áhersla á að fullvinna eina prufu fyrir hverja aðferð og við munum fara yfir það hvernig sé best að meta hvaða aðferð og nálgun hentar fyrir ólíkar flíkur. Svo er nemendum frjálst að koma með sín eigin föt og gera við þau undir handleiðslu kennara þegar tími gefst.
Námskeiðið er 4 vikur.