Módelteikning

Á þessu námskeiði verður lögð áhersla á grunnþætti módelteikningar: hlutföll, línu og form; sem og tengingu þessara grunnþátta við efni og tækni. Nemendur þjálfast í notkun á blýanti, kolum, bleki og fleiru. Sýnd verða dæmi úr listasögunni og úr myndskreyttum bókum.

Módeli verður stillt upp í mislangan tíma en það ræðst aðallega af efnisnotkun hverju sinni. Bæði verða teiknaðar lengri stöður og hraðskissur. Glímt er við hreyfingu í sumum verkefnum og birta og skuggi verða síðan í forgrunni teikningarinnar í öðrum verkefnum.

Kennslan er persónubundin og tekur mið af hæfni og þörfum hvers nemenda.

2 námskeið í boði og er hvert 6 vikur.

Efniskaup: Blýantar í mýktum 2H, HB, 2B, 4B og 6B og hnoðleður og strokleður.
Hámarksfjöldi nemenda: 12 í hverju námskeiði
Kennslustundir: 26
Einingar: 1
Ætlar að nota frístundastyrk?

ATH. Námskeið er of stutt til að uppfylla skilyrði frístundastyrks fyrir 18 ára og yngri.

Frídagar skólans:
  • Vegna vetrarfrís 22.-23. febrúar fellur kennsla niður mánudaginn 22. febrúar.
  • Vegna páskafrís 22.-29. mars fellur kennsla niður mánudagana 22. og 29. mars.
Modelteikning00

Rauðarárstígur 10

Hópur Hefst Lýkur Kennsludagur Tímasetning Kennari Verð Skráning
N0111 11. janúar, 2027 – 15. febrúar, 2027 Mánudagur 11. janúar, 2027 15. febrúar, 2027 Mánudagur 17:45-21:00 Halldór Baldursson 78.400 kr.
N0301 1. mars, 2027 – 19. apríl, 2027 Mánudagur 1. mars, 2027 19. apríl, 2027 Mánudagur 17:45-21:00 Halldór Baldursson 78.400 kr.