Kynntar eru ýmsar aðferðir við að búa til ferilmöppu (á rafrænu formi). Kennt er á tölvuforritin Photoshop og Indesign þar sem lögð er áhersla á að nemendur öðlist færni í að setja upp myndir og texta í tölvu.
Farið er í allar helstu aðferðir til myndvinnslu og uppsetningu á myndum og texta sem nýtist við möppugerð. Einnig er kennt hvernig undirbúa á rafrænt skjal til útprentunar. Kennd eru lykilatriði sem skipta máli við gerð ferilmöppu og hvaða áherslur ber að hafa í huga. Nemendur koma með myndir af verkum til að setja upp í möppuna.
Einnig verður boðið upp á ljósmynda verk í fyrstu tímunum og vinna myndirnar áfram í ferilmöppuna. Áhersla er lögð á að nemendur nái að útbúa heildstæða og persónulega möppu sem endurspeglar styrk og listræna sýn nemandans.
Námskeiðið er 8 vikur.