Vatnslitun: Tilraunir

Á námskeiðinu verða gerðar fjölbreyttar tilraunir með vatnslit í samvinnu við kennara. Ætlunin er að nálgast vatnslitun úr sem flestum áttum og áhersla lögð á tilraunagleði. Verkefnin verða gjarnan tengd tilteknum straumum og stefnum eða ákveðnum listamönnum. Námskeiðið hentar byrjendum vel en lagt er upp úr því að mæta hverjum og einum nemanda á eigin forsendum.

6 vikna námskeið.

Efniskaup: Nemendur fá vatnslitapappír í fyrstu tveimur tímum námskeiðsins en þeim er síðan gert að kaupa pappír í samráði við kennara. Nemendur koma með eigin liti og er mikilvægt að þeir séu frá viðurkenndum merkjum.

Notast er við þessa liti eða aðra sambærilega: Lemon Yellow, Cadmium Yellow, Cadmium Red (eða annar hárauður til dæmis Winsor Red), Alizarin Crimson, Ultramarine blue, Winsor Blue (Green Hue), Permanent Sap Green, Yellow Ochre, Ivory Black. Ef nemendur eiga fleiri liti er gott að hafa þá meðferðis.

Mjög gott er að eiga marðarhárspensil nr. 8-14, Kolinski Sable þar sem þeir halda miklu vatni/lit í sér. Annars má nota vatnslitapensla úr gerfiefnum sem kosta ekki jafn mikið. Ráðlagt er að eiga allavega tvo pensla (nr. 6 og nr. 12) og passa að þeir endi í oddi en ekki flatir. Fleiri penslastærðir er gott að hafa en ekki nauðsynlegt.
Hámarksfjöldi nemenda: 12
Kennslustundir: 26
Einingar: 1
Frídagar skólans:

Vegna vetrarfrís 22.-23. febrúar fellur kennsla niður þriðjudaginn 23. febrúar.

Ætlar að nota frístundastyrk?

ATH. Námskeið er of stutt til að uppfylla skilyrði frístundastyrks fyrir 18 ára og yngri.

Vatnslitun 00

Rauðarárstígur 10

Hópur Hefst Lýkur Kennsludagur Tímasetning Kennari Verð Skráning
N0126 26. janúar, 2027 – 9. mars, 2027 Þriðjudagur 26. janúar, 2027 9. mars, 2027 Þriðjudagur 17:45-21:00 Anna Rún Tryggvadóttir 74.000 kr.