Endurreisnar málverkið

Á námskeiðinu verða nemendur kynntir fyrir aðferðum og vinnubrögðum í málaralist endurreisnarinnar og hvernig þau geta nýst í málun í dag. Unnið verður með þessar aðferðir í verklegum verkefnum og þær settar í sögulegt samhengi með kynningum á verkum, listamönnum og hugmyndum tímabilsins. Áhersla er lögð á að nemendur öðlist skilning á uppbyggingu málverka endurreisnarinnar og geti nýtt sér þá þekkingu í eigin vinnu.

Námskeiðið er 10 vikur og hentar bæði byrjendum og lengra komnum.

Efniskaup: Nemendur skulu koma með það efni sem þeir eiga ef við á en frekari efniskaup verða gerð í samráði við kennara. Málunarpappír og íblöndunarefni eru innifalin í námskeiðisgjaldi.
Hámarksfjöldi nemenda: 12
Kennslustundir: 43
Einingar: 2
113147

Rauðarárstígur 10

Hópur Hefst Lýkur Kennsludagur Tímasetning Kennari Verð Skráning
N0121 21. janúar, 2027 – 1. apríl, 2027 Fimmtudagur 21. janúar, 2027 1. apríl, 2027 Fimmtudagur 17:45-21:00 Halldór Kristjánsson 115.000 kr.