Grunnþættir málunar

Á námskeiðinu verður farið yfir undirstöðuatriði málunar með olíulitum. Nemendur verða kynntir fyrir ólíkum þáttum málunar, svo sem litafræði og myndbyggingu; landslagsmálverki, portrettmyndum, kyrralífi og abstrakt. Þeim verður kennt að meðhöndla íblöndunarefni, olíuliti og pensla. Auk þess verklega verða kynningar með dæmum úr listasögunni.

Þó svo að um grunnnámskeið í olíumálun sé að ræða getur námskeiðið sannarlega gagnast lengra komnum. Þau verkefni sem lögð verða fyrir eru opin í annan endann og kennslan einstaklingsmiðuð.

2 námskeið í boði og er hvert 6 vikur.

Efniskaup: Nemendur skulu koma með það efni sem þeir eiga ef við á en frekari efniskaup verða gerð í samráði við kennara. Málunarpappír og íblöndunarefni eru innifalin í námskeiðisgjaldi.
Hámarksfjöldi nemenda: 12 í hverju námskeiði
Kennslustundir: 26
Einingar: 1
Frídagar skólans:

Hópur N0303 ATH. Vegna páskafrís 22.-29. mars fellur kennsla niður miðvikudaginn 24. mars.

Ætlar að nota frístundastyrk?

ATH. Námskeið er of stutt til að uppfylla skilyrði frístundastyrks fyrir 18 ára og yngri.

Myndlistaskolinn 109

Rauðarárstígur 10

Hópur Hefst Lýkur Kennsludagur Tímasetning Kennari Verð Skráning
N0113 13. janúar, 2027 – 17. febrúar, 2027 Miðvikudagur 13. janúar, 2027 17. febrúar, 2027 Miðvikudagur 17:45-21:00 Kristinn G. Harðarson 73.000 kr.
N0303 3. mars, 2027 – 14. apríl, 2027 Miðvikudagur 3. mars, 2027 14. apríl, 2027 Miðvikudagur 17:45-21:00 Kristinn G. Harðarson 73.000 kr.