Leirmótun og skúlptúr

Markmið námskeiðsins Leirmótun og skúlptúr er að nemendur kynnist möguleikum leirs sem skúlptúrefnis. Áhersla verður lögð á skapandi vinnuferli og leikgleði, þar sem nemendur fá að vinna frjálslega með efnið og kanna möguleika þess. Unnið verður með margvísleg form, bæði geómetrísk og lífræn, og formskyn nemandans þannig þjálfað. Samsetning og samspil ólíkra hluta verður skoðað með tilliti til formgerðar.

Þær aðferðir sem notaðar eru til handmótunar eru að mestu þær sömu í dag og þær voru fyrir þúsundum ára: fingraaðferð, slönguaðferð og plötuaðferð. Nemendur námskeiðsins munu læra þessar aðferðir við vinnslu keramiks og munu samhliða því kynnast eiginleikum efnisins. Jafnframt verða þeim kenndar fjölbreyttar leiðir til meðhöndlunar á yfirborði leirsins.

Námskeiðið er 10 skipti.

Efniskaup: Allt leirefni innifalið í námskeiðisgjaldi. Áhöld verða til láns á staðnum.
Hámarksfjöldi nemenda: 12
Kennslustundir: 43
Einingar: 2
Frídagar skólans:
  • Vegna vetrarfrís 22.-23. febrúar fellur kennsla niður þriðjudaginn 23. febrúar.
  • Vegna páskafrís 22.-29. mars fellur kennsla niður þriðjudaginn 23. mars.
Mir 16 03 21 73 cropped

Rauðarárstígur 10

Hópur Hefst Lýkur Kennsludagur Tímasetning Kennari Verð Skráning
N0112 12. janúar, 2027 – 30. mars, 2027 Þriðjudagur 12. janúar, 2027 30. mars, 2027 Þriðjudagur 17:45-21:00 Agnes Freyja Björnsdóttir 114.000 kr.