Leirrennsla (morgunnámskeið)

Á námskeiðinu er kennt á rafknúinn rennibekk. Áhersla er lögð á verkþjálfun en námið fer einnig fram með sýnikennslu. Hver nemandi fær rennibekk til afnota. Nemendur kynnast heildstæðu ferli þar sem farið er í forvinnu, samsetningar á renndum hlutum og afrennslu. Noktun glerunga verður kynnt fyrir nemendum og þeim leiðbeint um hvaða glerungar henti renndum hlutum best.

Við leggjum okkar fram við að skapa stemningu eins og um keramikverkstæði úti í bæ væri að ræða þar sem hver og einn nemandi vinnur að skipulögðum verkefnum í samráði við kennara. Lagt er upp úr því að nemendur fái tilfinningu fyrir leir sem efnivið og finni fyrir framförum á námskeiðistímanum.

Námskeiðið er 12 vikur.

Efniskaup: Allt leirefni er innifalið í námskeiðisgjaldi. Verkfæri verða til láns á staðnum en nemendum er jafnframt frjálst að koma með eigin verkfæri.
Hámarksfjöldi nemenda: 11
Kennslustundir: 52
Einingar: 2
Frídagar skólans:

Vegna páskafrís 22.-29. mars fellur kennsla niður fimmtudaginn 25. mars.

MIR Evening Class 9

Rauðarárstígur 10

Hópur Hefst Lýkur Kennsludagur Tímasetning Kennari Verð Skráning
N0121 21. janúar, 2027 – 15. apríl, 2027 Fimmtudagur 21. janúar, 2027 15. apríl, 2027 Fimmtudagur 09:00-12:15 Þuríður Ósk Smáradóttir og Isabel Anne Fisk-Baruque 145.500 kr.