Leirrennsla

Á námskeiðinu er kennt á rafknúinn rennibekk. Áhersla er lögð á verkþjálfun en námið fer einnig fram með sýnikennslu. Hver nemandi fær rennibekk til afnota. Nemendur kynnast heildstæðu ferli þar sem farið er í forvinnu, samsetningar á renndum hlutum og afrennslu. Noktun glerunga verður kynnt fyrir nemendum og þeim leiðbeint um hvaða glerungar henti renndum hlutum best.

Við leggjum okkar fram við að skapa stemningu eins og um keramikverkstæði úti í bæ væri að ræða þar sem hver og einn nemandi vinnur að skipulögðum verkefnum í samráði við kennara. Lagt er upp úr því að nemendur fái tilfinningu fyrir leir sem efnivið og finni fyrir framförum á námskeiðistímanum.

Námskeiðið er 10 vikur. Kennslan fer fram á ensku.

Efniskaup: Allt leirefni er innifalið í námskeiðisgjaldi. Verkfæri verða til láns á staðnum en nemendum er jafnframt frjálst að koma með eigin verkfæri.
Hámarksfjöldi nemenda: 11
Kennslustundir: 43
Einingar: 2
Frídagar skólans:
  • Vegna vetrarfrís 22.-23. febrúar fellur kennsla niður mánudaginn 22. febrúar.
  • Vegna páskafrís 22.-29. mars fellur kennsla niður mánudagana 22. og 29. mars.
Myndlistaskolinn 146

Rauðarárstígur 10

Hópur Hefst Lýkur Kennsludagur Tímasetning Kennari Verð Skráning
N0111 11. janúar, 2027 – 5. apríl, 2027 Mánudagur 11. janúar, 2027 5. apríl, 2027 Mánudagur 17:45-21:00 Martina Priehodová 123.000 kr.