Leirrennsla: Framhald

Námskeiðið er hugsað fyrir þá sem hafa náð góðum tökum á leirrennslu en vilja bæta færni sína og öðlast frekari skilning á ferlinu. Kennari leggur einstaklingsmiðuð verkefni fyrir nemendur í hverjum tíma. Mælst er til þess að nemendur notist við skissubók.

Hópurinn fylgist að yfir námskeiðistímann og kynnist heildstæðu ferli, allt frá rennslu til brennslu, meðhöndlun glerunga og endurnýtingu á leir. Unnið verður með margvísleg form og formskyn nemenda þannig þjálfað. Lagt er upp úr því að nemendur fái tilfinningu fyrir leir sem efnivið og finni fyrir aukinni hæfni í leirrennslu eftir að námskeiði lýkur.

12 vikna námskeið.

Efniskaup: Allt leirefni er innifalið í námskeiðisgjaldi. Verkfæri verða til láns á staðnum en nemendum er jafnframt frjálst að koma með eigin verkfæri.
Hámarksfjöldi nemenda: 11
Kennslustundir: 52
Einingar: 2
Frídagar skólans:

Vegna páskafrís 22.-29. mars fellur kennsla niður miðvikudaginn 24. mars.

403 H12 Módun C Leirrennsla 6

Rauðarárstígur 10

Hópur Hefst Lýkur Kennsludagur Tímasetning Kennari Verð Skráning
N0120 20. janúar, 2027 – 14. apríl, 2027 Miðvikudagur 20. janúar, 2027 14. apríl, 2027 Miðvikudagur 17:45-21:00 Þuríður Ósk Smáradóttir og Isabel Anne Fisk-Baruque 146.500 kr.