Kintsugi: japönsk viðgerðarlist

Á þessu 8 vikna námskeiði verður unnið með hefðbundin japönsk efni og aðferðir við gera við brotið leirtau með gulli. Farið verður yfir sögu og grunnaðferðir kintsugi og þátttakendur læra inn á náttúruleg efni og meðferð þeirra, ss. urushi lakk og ýmsa málma.

Innifalið í verði er byrjendasett með efnum og áhöldum.

Nemendur eru beðnir um að koma með að minnsta kosti tvo persónulega muni úr leir eða postulíni sem þarfnast viðgerðar og einn til tvo smáa viðarhluti, til dæmis skeið, smjörhníf eða annan einfaldan nytjahlut, sem lakkaður verður með urushi.

Hámarksfjöldi nemenda: 10
Kennslustundir: 35
Einingar: 1
Frídagar skólans:

Vegna páskafrís 22.-29. mars fellur kennsla niður miðvikudaginn 24. mars.

Kintsugi 2

Rauðarárstígur 10

Hópur Hefst Lýkur Kennsludagur Tímasetning Kennari Verð Skráning
N0224 24. febrúar, 2027 – 21. apríl, 2027 Miðvikudagur 24. febrúar, 2027 21. apríl, 2027 Miðvikudagur 17:45-21:00 Steinunn Knúts-Önnudóttir 98.500 kr.