Arkitektúr og hönnun

Á námskeiðinu eru tvívíð og þrívíð verkefni unnin frá hugmynd til útfærslu. Nemendur kynnast ýmsum aðferðum við myndbyggingu og velta fyrir sér stærð og hlutföllum, endurtekningu, takti og mynstri. Nemendur gera tilraunir í tilbúnu rými (líkani), skoða bæði geómetrísk og lífræn form og kanna samspil þeirra við aðra þætti. Hönnunarsagan verður skoðuð í tengslum við verkefnin og kannað verður hvernig unnið er með rými í samtímamyndlist, hönnun og arkitektúr. Námskeiðið hentar vel þeim sem hyggja á nám í hönnun eða arkitektúr.

12 vikna námskeið.

Efniskaup: Allt efni sem þarf til þátttöku á námskeiðinu er innifalið í námskeiðisgjaldi en nemendum er frjálst að koma með þau efni og áhöld sem þeir eiga og eru vanir að nota, ef við á.
Hámarksfjöldi nemenda: 24
Kennslustundir: 52
Einingar: 2
Frídagar skólans:
  • Vegna vetrarfrís 22.-23. febrúar fellur kennsla niður þriðjudaginn 23. febrúar.
  • Vegna páskafrís 22.-29. mars fellur kennsla niður þriðjudaginn 23. mars.
Form Rými Frh B

Rauðarárstígur 10

Hópur Hefst Lýkur Kennsludagur Tímasetning Kennari Verð Skráning
N0112 12. janúar, 2027 – 13. apríl, 2027 Þriðjudagur 12. janúar, 2027 13. apríl, 2027 Þriðjudagur 17:45-21:00 Bjarki Gunnar Halldórsson og Karitas Möller 140.000 kr.