Vefnaður

Grunnnámskeið í vefnaði er verklegt námskeið þar sem nemendur fá tækifæri til þess að kynnast möguleikum vefnaðar. Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist þá þekkingu og færni sem þarf til þess að setja upp í vefstól og vefa voð að eigin vali. Hver nemandi fær úthlutaðan vefstól og vinnur að einstaklingsmiðuðu verkefni sem skipulagt er í samráði við kennara, með áherslu á að framkvæmd verkefnisins sé raunhæf innan tímaramma námskeiðisins.

Í námskeiðinu verður lögð áhersla á að nemendur vinni frjálst út frá eigin áhugasviði. Prufugerð og tilraunastarfsemi verða metin til jafns við afmörkuð verkefni. Í upphafi fá nemendur stutta kynningu á bindifræði, hvernig lesa eigi uppskriftir, fylgja leiðbeiningum og áætla garnmagn fyrir uppistöðu í vefnað. Nemendur fá stutta kynningu á helstu vefnaðaraðferðum og velja sér aðferð og bindimunstur til þess að nýta í verkefnin framundan. Á meðan vefnaður stendur yfir fá nemendur leiðsögn við tæknileg atriði og útfærslur frágangs.

Námskeiðið er 5 vikur.

Efniskaup: Nemendum er gert að útvega sér efni sjálfir en munu hafa aðgang að vefstólnum á skrifstofutíma skólans á tímabili námskeiðsins.
Hámarksfjöldi nemenda: 7
Kennslustundir: 37
Einingar: 2
IMG 2517

Rauðarárstígur 10

Hópur Hefst Lýkur Tímasetning Kennari Verð Skráning
N0601 1. júní, 2026 – 1. júlí, 2026 1. júní, 2026 1. júlí, 2026 17:45-21:00 Thelma Kristín Stefánsdóttir 120.000 kr.