Markmið námskeiðsins er að kenna helstu grundvallaratriði vatnslitamálunar. Einnig verður farið yfir nokkur atriði varðandi teikningu. Áhersla er lögð á borgar- og bæjarmyndir. Hús, bílar, götur, fólk, tré, himinn, en einnig vatn, bátar og speglun. Nemendur fá leiðsögn í uppbyggingu myndar, litavali og mismunandi tækni í vatnslitum í gegnum sýnikennslu og verklega vinnu.
Námskeiðið er ein vika, frá mánudegi til föstudags, kvöldin 10. til 14. ágúst, frá kl. 17:00 til 20:15.