Teikning í borgarlandslagi

Teikning í borgarlandslagi (Urban Sketching) er í raun listræn fréttamennska eða „sjónræn dagbókagerð“. Hugtakið vísar til þess að teikna lífið eins og það gerist í beinni útsendingu, beint á staðnum þar sem þú ert staddur – hvort sem það er í miðri stórborg, í litlu þorpi eða jafnvel inni á kaffihúsi.

Dagana 13. til 16. júlí verður haldið námskeið í Myndlistaskólanum í Reykjavík þar sem þátttakendur frá ýmsum löndum taka þátt í skrásetja Reykjavík með eigin augum út frá efnistökum skissuteikningar. Borgin verður skoðuð og tengsl hennar við náttúruna og mannlíf.

Gengið verður út frá manifestói Urban Sketching. Teiknað verður á staðnum. Við segjum sögu umhverfis okkar þar sem sannleikurinn gildir. Teiknum saman í hóp, fáum stuðning hvert af öðru og deilum teikningum með umheiminum. Æfingar munu styrkja nemendur í að ná valdi í línuteikningu, fjarvídd, myndbyggingu, skyggingu, litatónun og vatnslitun. Manneskjunni verður gerð skil með einföldum dráttum þar sem látbragð glæðir myndina lífi og frásögn.

Kennari verður Halldór Baldursson. Halldór er yfirkennari á teiknibraut skólans. Hann hefur víðtæka reynslu sem myndskreytir og skopteiknari með áherslu á samfélagsleg mál. Meðfram því hefur hann haft áráttu fyrir að halda skissubók og mun miðla af þeirri reynslu sinni.

Námskeiðið er frá 13. til 16. júlí, mánudaga til fimmtudaga, frá kl. 10:00 til 14:00.

Mynd af skissu eftir Halldór Baldursson.

Efniskaup: Þátttakendur koma með teikniverkfæri sem þeir eru vanir að nota og teiknibækur eða -blokkir.
Hámarksfjöldi nemenda: 12
Hlemmur1

Rauðarárstígur 10

Hópur Hefst Lýkur Tímasetning Kennari Verð Skráning
N0713 13. júlí, 2026 – 16. júlí, 2026 13. júlí, 2026 16. júlí, 2026 10:00-14:00 Halldór Baldursson 65.000 kr.