Leirrennsla

Á námskeiðinu er kennt á rafknúinn rennibekk. Áhersla er lögð á verkþjálfun en námið fer einnig fram með sýnikennslu. Hver nemandi fær rennibekk til afnota. Nemendur kynnast heildstæðu ferli þar sem farið er í forvinnu, samsetningar á renndum hlutum og afrennslu.

Noktun glerunga verður kynnt fyrir nemendum og þeim leiðbeint um hvaða glerungar henti renndum hlutum best. Við leggjum okkar fram við að skapa stemningu eins og um keramikverkstæði úti í bæ væri að ræða þar sem hver og einn nemandi vinnur að skipulögðum verkefnum í samráði við kennara. Lagt er upp úr því að nemendur fái tilfinningu fyrir leir sem efnivið og finni fyrir framförum á námskeiðistímanum.

Námskeiðið er 5 vikur.

Frídagar: Ekki er kennt fimmtudaginn 18. júní.
Efniskaup: Allt leirefni er innifalið í námskeiðisgjaldi. Verkfæri verða til láns á staðnum en nemendum er jafnframt frjálst að koma með eigin verkfæri.
Hámarksfjöldi nemenda: 11
Kennslustundir: 37
Einingar: 2
Myndlistaskolinn 147

Rauðarárstígur 10

Hópur Hefst Lýkur Tímasetning Kennari Verð Skráning
N0526 26. maí, 2026 – 23. júní, 2026 26. maí, 2026 23. júní, 2026 09:00-12:15 Viktor Breki Óskarsson 95.000 kr.