Myndlist: Vinnustofa

Vinnustofan er hugsuð sérstaklega fyrir nemendur sem hafa útskrifast af starfsbrautum og fjölnámsbrautum framhaldsskólanna eða þau sem almennt þurfa góðan stuðning við þátttöku á námskeiðum.

Vinnustofan er annars vegar hugsuð sem sjálfstæð vinna undir handleiðslu kennara fyrir hóp sem á það sammerkt að hafa fengist töluvert við listiðkun og jafnvel mótað persónulegan stíl. Hins vegar er boðið upp á kennslu í tækni, efni og aðferðum fyrir nýja nemendur. Vinnustofan er því sérsniðin að þörfum hvers og eins og um leið hvatning til þátttakenda að halda listiðkun sinni áfram og víkka bæði áhugasvið sitt og færni í myndlist.

Vinnustofan er 12 skipti. Kennt verður á fimmtudags-eftirmiðdögum kl. 12:15-15:00.

Frídagar: Ekki verður kennt á fimmtudaginn 22. október vegna vetrarfrís skólans.
Efniskaup: Nemendur koma með þau efni og áhöld sem þeir eiga og eru vanir að nota. Frekari efniskaup í samráði við kennara.
Hámarksfjöldi nemenda: 14
Undanfari:

Hafa lokið starfsbraut eða fjölnámsbraut framhaldsskólanna.

Vetrarfrí skólans:

Vetrarfrí er frá og með 22. til og með 26. október.

31357832 1642492655804024 5290694560941342720 O

Rauðarárstígur 10

Hópur Hefst Lýkur Kennsludagur Tímasetning Kennari Verð Skráning
VS0917 17. september, 2026 – 10. desember, 2026 Fimmtudagur 17. september, 2026 10. desember, 2026 Fimmtudagur 12:15-15:00 Berglind Erna Tryggvadóttir, Kristinn G. Harðarson og Sigríður Björg Sigurðardóttir 105.000 kr.