Málaralist: Vinnustofa

Vinnustofan er ætluð nemendum með töluverða reynslu af málaralistinni sem geta eða vilja vinna sjálfstætt í listsköpun sinni en jafnframt eiga þess kost að leita leiðsagnar. Fyrir þá sem vilja eru verkefni en þó það opin að hægt er að leysa þau á eigin hátt. Viðvera kennara er jafnframt áætluð 50% af tímunum. Fjallað um tæknileg atriði s.s. liti og í blöndunarefni, grunna og fleira. Inn í kennsluna verða fléttuð dæmi og fróðleikur úr listasögunni eftir því sem við á.

Vinnustofan er 12 vikur.

Frídagar: Vinnustofan verður ekki haldin föstudaginn 23. október vegna vetrarfrís skólans.
Efniskaup: Nemendur koma með þau efni og áhöld sem þeir eiga og eru vanir að nota. Frekari efniskaup í samráði við leiðbeinanda.
Hámarksfjöldi nemenda: 12
Vetrarfrí skólans:

Vetrarfrí er frá og með 22. til og með 26. október.

Img 3324

Rauðarárstígur 10

Hópur Hefst Lýkur Kennsludagur Tímasetning Kennari Verð Skráning
VS0918 18. september, 2026 – 11. desember, 2026 Föstudagur 18. september, 2026 11. desember, 2026 Föstudagur 17:45-21:00 Kristinn G. Harðarson 80.500 kr.