Teikning

Kennd eru undirstöðuatriði hlutateikningar: formgreining og skygging. Hlutateikning byggir á gegnsæisteikningu þar sem uppbygging hlutanna er skoðuð. Unnið er með blæbrigði línunnar, mismunandi áherslur og grátónaskala blýantsins.

Í byrjun námskeiðs eru frumformin teiknuð í samsíða vídd og form þeirra dregin fram með skyggingu. Kennd eru undirstöðuatriði í fjarvídd og rýmisteikningu. Á síðari hluta námskeiðsins er hlutfallamæling æfð. Teiknaðir verða einfaldir hlutir með áherslu á form og skyggingu (yfirfærsla á þrívíðum viðfangsefnum á tvívíðan flöt pappírsins). Fjallað er um myndbyggingu og kynntir eru ýmsir listamenn sem tengjast efninu hverju sinni.

Námskeiðið er 10 vikur.

Frídagar: Ekki verður kennt á mánudaginn 26. október vegna vetrarfrís skólans.
Efniskaup: Blýantar í mýktum 2H, HB, 2B, 4B og 6B auk strokleðurs og hnoðleðurs.
Hámarksfjöldi nemenda: 12
Kennslustundir: 35
Einingar: 2
Vetrarfrí skólans:

Vetrarfrí er frá og með 22. til og með 26. október.

MIR Evening Class 8

Rauðarárstígur 10

Hópur Hefst Lýkur Kennsludagur Tímasetning Kennari Verð Skráning
N0921 21. september, 2026 – 30. nóvember, 2026 Mánudagur 21. september, 2026 30. nóvember, 2026 Mánudagur 17:45-21:00 Karlotta J. Blöndal 110.000 kr.