Leifur Ýmir leiðir vinnustofu í grafík þar sem áhersla verður lögð á grunnaðferðir grafíkur. Einþrykkið verður skoðað sérstaklega og möguleikar plötuþrykks.
Á fyrsta kvöldinu verður farið yfir ferlið við vinnu á grafík og búa nemendur til sitt eigið litla grafíkverkstæði. Markmiðið er að þátttakendur geti komist hratt af stað og farið að vinna sjálfstætt að eigin tilraunum.
Á seinna kvöldinu verður beitt sama vinnulagi og bætt við fleiri aðferðum. Möguleikar skoðaðir á mismunandi prentplötum og aðferðum sem tengjast þeim.
Í lok vinnustofunnar verður útbúinn mappa. Við tökum tilraunirnar saman og förum yfir afraksturinn.
Mælt er með því að nemendur klæðist vinnufatnaði. Þátttakendur skulu hafa teikniáhöldin sín meðferðis.
Námskeiðið er kennt er á
- 19.11. fimmtudag, kl.17:45-21:00, og
- 20.11. föstudag, kl.17:45-21:00