Gengið verður út frá manifestói Urban Sketching.
Hugtakið vísar til þess að teikna lífið eins og það gerist í beinni útsendingu, beint á staðnum þar sem þú ert staddur – hvort sem það er í miðri stórborg, í litlu þorpi eða jafnvel inni á kaffihúsi.Æfingar munu styrkja nemendur í að ná valdi í línuteikningu, fjarvídd, myndbyggingu, skyggingu, litatónun og vatnslitun. Manneskjunni verður gerð skil með einföldum dráttum þar sem látbragð glæðir myndina lífi og frásögn.
Kennari verður Halldór Baldursson. Halldór er yfirkennari á teiknibraut skólans. Hann hefur víðtæka reynslu sem myndskreytir og skopteiknari með áherslu á samfélagsleg mál.
Mynd af skissu eftir Halldór Baldursson.