Markmið námskeiðsins er að kenna helstu grundvallaratriði vatnslitamálunar og teikningar. Áhersla er lögð á borgar- og bæjarmyndir. Hús, bílar, götur, fólk, tré, himinn, en einnig vatn, bátar og speglun. Nemendur fá leiðsögn í uppbyggingu myndar, litavali og mismunandi tækni í vatnslitum í gegnum sýnikennslu og verklega vinnu.
Við mælum með því að nemendur hafi lokið námskeiði í teikningu áður en farið er í Vatnslitun: borgarlíf.Námskeiðið er 6 vikur.